Thursday, October 30, 2008

Með Teipaða Fingur Við Klifrum Endalaust!

Já það er gott að hafa það á hreinu að búlder er best. það er gott að vera úti í skógi þó að það sé soldið kalt úti , en ég held að það sé við frostmark á næturnar, en stór eldur reddar því og ný dúnúlpa á morgnanna.
Og viti menn við erum búnir að mastera listina að kveikja eld án þess að nota bensín, og það er erfiðara enn að seigja það.

Við erum farnir að ná að lifa fyrir 2 og hálfa evru á mann á dag og það er nokkuð vel sloppið held ég. Bernd er búin að fullkomna listina að nýta næringuna og helst í fullkomnu jafnvægi með að borða bara það sem hann getur nýtt og þá þarf hann ekki að skíta. hann slær 2 flugur í einu höggi því að tíminn er peningar og hann á fullt af tímapeningum núna... heppinn.
ég var ekki allveg svo heppin og settist í rósarunna eða eitthvað, það var gaman.

Við keiptum ódýrt sinnep um daginn, og bernd setti það á brauðið sitt og fékk svo nefrennsli því að það var svo sterkt, ég ætlaði sko að sýna honum að það væri nú ekki svona sterkt og át 3 matskeiðar af sinnepi, og viti menn ég fékk íllt í magan í svona klukkutíma, og fyrir utan að þetta var sterkasta sinnep í heimi þá er 20 % alkahól í því, sem ég veit ekki allveg afhverju. en það nýtist allaveganna í súpu núna.

Við erum búnir að klifra fullt af probbum og skinnið er eitthvað að minnka, ótrúlega gaman en það er samt smá rigning núna svo að við sitjum inná kaffihúsi og drekkum heitt kakó. það versta við að fara inn og sitja fyrir framan ofn er það að maður vill eiginlega ekkert út aftur

Við fáum svo nokkrar heimsóknir hingað núna, Halldóra ætlar örugglega að kíkja frá París og vinur bernds kemur 3 nóv og svo kemur frændi 10.

Löggan hérna sannaði svo ágæti sitt því að við vorum ný búnir að hjálpa 2 klifrurum sem lentu í því að það var brotist inn í bílinn þeirra hliðiná einhverju klifursvæði svo að hurðin var biluð, og við lánuðum þeim einhver verkfæri, eftir svona korter kom löggan upp úr þurru og keirði um bílastæðið rólega og stoppað akkurat fyrir framan okkur þar sem við vorum að borða og horfði á okkur eins og glæpamenn, opnaði gluggann og sagði frekjulega á frönsku " ÞAÐ ER BANNAÐ AÐ HAFA RUSL UNDIR BÍLNUM" ... vá takk fyrir að vera gagnslaus.

Saturday, October 25, 2008

Expressó kaffi, Bagett og hunang

Já það er frakkland, við keirðum 900 km frá franken til font, og gistum á besta tjaldsvæði í heimi eins og vanalega, nema hvað , við vorum vaktir af löggunni útaf því að það var svo hættulegt að vera undir trjánum. Greinarnar eiga það víst til að detta. svo fórum við út að fá okkur kaffi og sáum að tréð hliðiná var dottið í sundur.

Planið er að vera hérna í cirka mánuð og hafa það gott, við þurfum bara að finna okkur nýtt tjaldsvæði í dag nema að við verðum bara einhverstaðar inní skógi með villisvínunum.

allaveganna erum við farnir að labba smá um bæinn og skoða eitthvað, og neinei kanski maður fari bara á Bas Cuvier. SWEEEEEEET

KVEÐJA ÚR FONT.....

Tuesday, October 21, 2008

Á ég að hringja í vælubílin eða ?

jé þá erum við búinir að fara í ómmælingu báðir 2 bernd á hnénu og ég á puttanum,
Bernd fór til hnésérfræðings í gær og hann sagði að hann ætti að hvíla í 2 vikur eða eitthvað en annars liti þetta ágætlega út ,
Svo var ég hjá miklum meistara áðan en áður en að hann kom að kíkja á mig þá var einhver lærlingurinn hans búin að vera skoða mig í 10 mínútur með ómtækinu, svo kom gamli og leit á skjáinn og sagði, þetta er flott farðu að klifra,

og svo leit hann á bent og spurði hvað væri að honum, því að hann var með bindi um hnéð. bernd sagði honum það en honum fanst það nú ekkert til að tala um og sagði að hann gæti nú allveg klifrað svona. Semsagt við erum bara vælukjóar og þurfum að fara að klifra, hehe.

Bernd er samt með smá slit í einhverju hnébandi og ég er með teigða A1 sinafestingu,
þetta voru þannig nokkuð góðar fréttir og við vorum vissir um að þetta væri verra hjá okkur báðum, líka eftir smellinn sem kom úr hendinni á mér og bernd gat þurft að fara í aðgerð.

eftir þetta fórum við í heimsókn til félaga okkar í vinnuna og horfðum á klifurmynd. En þessi gaur vinnur á u s og a hervelli hérna við það bjóða þeim sem vilja upp á útivist og þannig, semsagt hann þarf að fara í vinnuna kl 10. fara að klifra með einhverjum eða fara á bretti og er svo búin kl 5. en yfirleitt er ekkert að gera svo hann horfir á klifurmyndir. pretty sweet sko.


þá er planið bara að æfa rólega núna og vera komnir yfir þetta í font. eftir 2 til 3 vikur, og vel á minnst á ekki að fjölmenna þar eða ???

Thursday, October 16, 2008

man man man!

Við erum komnir aftur til þýskalands eftir að hafa verið í tékklandi í sirka viku, vorum eitthvað að skoða, gistum út í skógi og grilluðum þýskar pylsur og senf.

svo erum við líka búnir að mastera slackline, þótt að slingurinn sé alltof teygjanlegur og ég hafi fengið ágætis slammara þá gengur þetta ágætlega.
það var svona það helsta, en það er mjög flott klifurbúð í prag þar sem við keiptum slackline-ið. Og það er trúlega eina ástæðan fyrir að fara í prag.

við erum alltaf að leita að einhverju nýju að gera á meðan við hvílum klifrið.
Ég er tildæmis búin að kenna bernd mannganginn í tafli en það tók nokkra daga og mikla þolinmæði, hehe. við erum að spá í að renna til suðurþýskalands á eftir eða um helgina, og prófa bílinn betur en hann er búin að standa sig vel enda hetjubíll.

við ætlum að fara til læknis í næstu viku til að láta kíkja aðeins á okkur en kallinn sem skrifaði eina klifurmeiðslabók sem er til niðrí í klifurhúsi býr í næsta bæ við okkur held ég.

það væri trúlega gott að nokkur sígaunatár í krukku. ég hef heirt að það virki.

Thursday, October 9, 2008

Learn The Hard Way !

Jæja þá er þetta aðeins búið að breytast í bili, Bernd er að rifja upp gömul fótboltameiðsli í hnénu og ég var að fá meiddi í puttan, svo að við þurfum að hlíla klifrið smá. en við látum það ekki stoppa okkur í gleðinni og erum sáttir við að vera ekki á íslandi sem er að sökkva.

Við vorum búnir að fá okkur bíl og síðust 2 dagar erum við búnir að vera út í bílskúr að pimpa bílinn, við erum búinir að gera svefnpláss og allskonar fíneri .
Renndum í gær til prag og ætlum að vera hér í nokkra daga, ég komst svo að því að ég væri í tékklandi en ekki slóvakíu en það er annað mál... geðveikt veður og við erum búnir að vera berir að ofan í 20 - 30 stiga hita, væri klárlega ekkert gaman að klifra í svona veðri...snökt, djók.

við vorum kanski að spá í að fara svo eitthvert norður og heimsækja fólk í nokkrar vikur og fara síðan aftur suður í Font og hitta á frænda þar í nóvember. við ætlum samt ekki að detta úr formi við þetta og erum að missa okkur í æfingum og kalla hvorn annan feitan til stuðnings.

Saturday, October 4, 2008

Friday, October 3, 2008

jahá

Það er lítið búið að vera að geras þessa daganna vegna þess að það er búið að vera rigning en það var ágætt í dag, en örugglega er flest allt rakt. fórum á flott svæði í fyrradag sem að við héldum að væri þurrt en allur toppurinn var blautur svo að við nentum ekki að klifra á því, því að t.d ég ætlaði að fara að vinna í einhverri leið en það er frekar svekkjandi ef að maður dettur í akkerisklippinu...
en ég fór bara að búldera í puttaholum á meðan að bernd fór í göngutúr og villtist.

og ég skil ekki afhveru þjóðverjar eru ekki búnir að uppgvöta bárujárn en ég og bernd þurftum að bera 1.620 flísar sem að þeir leggja á þakið upp á sturtuvagn... og þá fyrst svitnar maður.

Við keiptum líka bíl um daginn, það er fiat (Kawasaki) fiorino ´91. það er búið að taka flest allt í gegn í honum af Harcore Tecno German Engineer og það er búið að sprauta hann Kawasaki grænan og á hliðinni á honum stendur Kawasaki Racing og að aftan og framan stendur "let good times roll" og það er það eina sem ég veit um bílinn því að þegar ég sá það þá sagðist ég ætla að kaupa hann ;) .
við förum að sækja hann á sunnudaginn...