Monday, December 29, 2008

hæbb

Jæja þá erum við búnir að keira þvert yfir pýrenafjöll og Alpa og hvað þetta heitir allt, það var svona 1 og hálfur metri af snjó þarna uppi og fjallavegirnir voru seinfarnir en eftir 16 tíma akstur og tæpum 1000 kílómetrum síðar lentum við í Siurana á spáni,

Það var gott að vakna þar og fara að klifra í sól og smá hita loksins, Nema hvað þá var ekki stundarfriður fyrir öskrum í Chris sharma hinu megin í dalnum Við sáum hann á tjaldsvæðinu og hann var smágerður og ljónstyggur.

Eftir 3 klifurdaga Í Siurana renndum við niður spán að hitta á Eyþór og Kristó sem ætla að eyða jólunum í El chorro á suðurspán.
Við komum á ströndina hjá malaga um hádegi og böðuðum okkur í sjónum og láum á ströndinni allann daginn,Sem var aaallveg fínt bara. fórum síðan á flugvölinn að sækja strákanna um kvöldið.

Núna erum við í El chorro og það er ótrúlega heitt og maður er nánast ber að ofan allann daginn, búinir að flagga Íslenska fánanum fyrir utan húsið og hangikjötið er í ísskápnum.
Núna erum við búinir að vera að klifra á fullu og komum alltaf dauðþreyttir heim í kofann, en það er ekkert sem að Ofurpasta og hvítlaukur og Sunny D geta ekki endunært.

Síðan erum við líka ofsóttir af sniglum (trúlega spánarsniglum) en þeim virðast líka vel við matinn sem að við gefum þeim.

2 comments:

Unknown said...

Hvað með spænskt sniglapasta með hvítlauki?

Venga!

Anonymous said...

Smágerður og ljónstyggur, hahaha, besta lýsing á manni sem ég hef séð.

Árið!

Sissi