Saturday, December 13, 2008

ég held að það sé kominn vetur

við vorum í Font í gær og það var snjór í skóginum en það var mjög gott að klifra þegar að maður var búin að hita upp naglakulið af sér. eftir klifur lögðum við af stað suður að heimsækja nikolæ og helen, bernd sagði mér að það væri bara svona sirka fjórir tímar þangað en það endaði með því að vera 7 eða 8 tímar. en þegar að við mættum beið eftir okkur heitur matur og fínerí.

það var samt mjög flott að keyra yfir Frakkland því að það var svo mikill snjór og allt hvítt. Ég dó næstum því að mig langaði svo á bretti þegar að maður sá skíðasvæðin, en við létum snjókast nægja..

og við erum núna í einhverjum bæ í frakklandi og byrjuðum daginn á því að fara í matarmarkað og fengum besta brauð og mandarínur í heimi trúlega, kíktum svo í klifurhúsið hérna með niko og það var bara nokkuð gott. það var meira að seigja billjardborð þar, og ef að það væri heima þá myndi ég ekki mikið klifra held ég.

Á morgun höldum við áfram suður, og við vitum ekki allveg hvert en okkur langar að kíkja smá í Siurana en það er spurning því að við ætlum að vera komnir til el chorro 18 des.

allaveganna er mjög gott hér og það besta eru rotturnar sem að niko og helen eiga, og án gríns þá eru þetta allvöru rottur, ekki hamstrar, og við erum búnir að vera að leika mikið við þær því að þær mega hlaupa um stofuna þó að þær eigi heima í búri stundum.

Og já ég held að það sé bara betra að vera í font í desember heldur en í nóvember þótt að það sé svoldið kalt en það er allaveganna ekki rigning. En það verður samt gott að komast til malaga og það fyrsta sem ég ætla að gera þegar að ég kem þangað er að stinga mér í sjóinn.

3 comments:

Unknown said...

góða ferð suður og kveðjur til frakkanna.

HRG.

Anonymous said...

Já, loksins fattaði ég hvernig á að commenta...En núna hef ég ekkert að commenta, þannig að góða ferð til spánar!
Kv
KRisdtó Anonymous III, hinn gríski

Anonymous said...

frábært að geta ferðast svona. Skemmtið ykkur vel :=)

Knus og klemm frá okkur hérna heima.
Mamma