Seinustu vikur eru búnar að vera góðar þótt að það hafi verið soldil rigning og að við höfum setið inná kaffihúsinu okkar mikið, þá er það bara gott..
við erum búnir að lenda í ýmsu og einn daginn á klifursvæðinu þá kom einn gaur hjólandi til okkar á svona barnamótorhjóli og spurði hvort að hann mætti prófa að klifra, við jánkuðum því og hann tók í fyrsta gripið og spólaði smá, sagði síðan að þetta væri of erfitt,
Síðan spurði hann hvort að við vildum ekki endilega prófa mótorhjólið hans og við sögðum bara njeeee, því að það sást langar leiðir að hann var eitthvað klikk.
hann spurði aðeins meir og endaði síðan á því að spóla í hring í laufblöðunum og keira í burt á vit ævintýranna.
svona korteri eftir það á sama steini þá kom gamall frakki til okkar og vildi endilega seigja okkur leyndarmál, hann gerði það og sagði að kalk væri gagnslaust og að við ættum að nota resin, sem er svona harpix og bernd er farinn að nota það eingöngu núna.
við keyrðum svo Elmar útá flugvöll um daginn og vorum alltof seinir en það slapp fyrir horn,
síðan keirðum við bernd inn í parís heim til halldóru en villtumst og keyrðum í hringi í svona 6 tíma þangað til að við fundum þetta en seinast tók það bara korter.
þegar við svo komum þangað þá sofnuðum við báðir í bílnum og vöknuðum eftir svona hálftíma og ég stóð út úr bílnum og akkurat labbaði stelpa fram hjá bílnum og í hvarf, svo tók hún nokkur skref aftur á bak og sagði : hæ bernd, hvað ert þú að gera hér? á íslensku . þá var þetta einhver íslendingur sem var í helgarferð í parís og þekkti bernd.. hverjar eru líkurnar?
það er smá hvíld núna því að við erum búnir að vera að klifra svo mikið og að einn eða tveir hvíldardagar eru ekki að gera neitt gagn svo að það er smá pása. : )
Gleði...
Tuesday, November 25, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment