Wednesday, November 12, 2008

ó boy

Þá er loksins farið að koma allvöru veður hérna í font og góðar aðstæður. ég fór um daginn og sótti Elmar og Halldóru útá flugvöll en þau komu með sömu vél fyrir tilviljun svo að þau komu í afmælisveilsu á tjaldstæðið, og Elmar með fullar hendur af hangikjeti og súkkulaði, og dagin eftir var besta veður sem við höfum haft og ég er viss um að þau hafi komið með það frá íslandi.

Mjög gaman að sjá ónefndan mann sem hefur aldrei klifrað í font beila á V 0 probba en hvað um það. Það er búið að vera mikið um veðmál og ég tapaði einu svo að ég þarf að gera lofkvæði um Elmar á bloggið, það kemur seinna... Halldóra var að taka myndir á fullu með klifrinu en hún fór svo um kvöldið því að hú þarf að fara í skólann.

En í dag sá ég flottasta fall sem ég hef nokkurntíman séð, en ég var að spotta Elmar í traversu sem ég er búin að vera að vinna í , og ég stóð fyrir neðan hann og var að spotta, og hann er með vinstri löpp í tádjammi og gerir erfitt deadpoint til hægri og nær ekki allveg og dettur niður, og þegar ég ætla að grípa hann þá sveiflast hann úr höndunum á mér á tákróknum sínum og sveiflast 4 metra til vinstri í heljarstökk og lenti þar í sandinum.

Ég stökk á eftir honum og endaði næstum ofaná honum í sjokki því að ég hélt að löppin væri ennþá föst, en svo stendur hann upp og ég spyr hvort að það sé allt í lagi þá segir hann að hann sé brotinn, og ég hugsaði bara ó sjitt þá er það búið , en hann var að grínast og tognaði bara smá.

Og eftir góðann klifurdag sitjum við núna inni á kaffihúsinu okkar og teflum við gömlu frakkana.

2 comments:

Ice said...

Flott að fá flere íslendinga í heimsókn, óþarfi að slasa þá á fyrstu dögunum :D. En flott að hann sé aðeins tognaður eftir flott fall.

Ice said...

Afmælis kveðja til Elmars! Til hamingju með daginn, njóttu hans vel!