Það er aðeins farið að fjölga á tjaldstæðinu okkar núna og við sátum nokkrir við eldin í gær, og það voru nokkrir hinumeginn sem að við vorum ekki búnir að hitta svo að ég rölti yfir að kíkja á krakkana, Nema hvað , það er myrkur svo að maður sér ekki mikið og ég labba til eins stráks þarna og hann segir " hæ Hjalti" . ok hverjar eru líkurnar... örugglega helmings.
Smá rigning núna og við vorum að klifra í helli sem er alltaf þurr, það var samt aðeins erfiðara að komast þangað því að það var búið að loka öllum leiðum inn í skóginn allt um kring og skilti sem að við vissum ekkert hvað þýddi , en við komumst þangað á endanum og á leiðinni í klettinn komumst við aðþví hvað skiltin þýddu. Veiðimenn eða eitthvað svoleiðis, því að frökkum finnst gaman að fara um skógin á hestbaki eða hlaupandi með skrilljón hunda og skjóta villisvín eða eitthvað út í loftið... en við fórum samt að klifra þótt að það væru skothvellir og gelt allt um kring, en við sáum þá samt aldrei..
það var líka búið að vera svo gott veður að við sofum stundum úti og lentum í því að vakna í rigningu rennandi blautir eða allaveganna ég því að ég nennti ekki að fara inn í bíl. það er ekkert voðalega gaman sko. svo að næsti dagur fór í það að hlýja sér við eldinn og þurrka svefnpokann,
við vorum svona líka heppnir í gær á leiðinni heim úr búðinni, því að oft þegar fólk er að taka til eða fá sér ný húsgögn þá hendir það gamla draslinu út á gangstétt. Og bernd tók eftir því og við sáum þetta fína þurra timbur á bálið,
nema hvað að ég fann svona stól sem er með svona klósett gati í miðjunni ef þú lyftir setunni upp, annars er þetta bara eins og venjulegur stóll.
og ég get svo svarið það að þetta er besta klósett sem að ég hef prófað .. allgjer draumur sko.
röltir bara aðeins út í skóg og fimmstjörnu klósett þegar að maður nennir ekki að labba lengra.
Thursday, November 6, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Ahaha þú ert nú aaalveg Hjalti Andrés :D
Eyka
Post a Comment