Thursday, October 30, 2008

Með Teipaða Fingur Við Klifrum Endalaust!

Já það er gott að hafa það á hreinu að búlder er best. það er gott að vera úti í skógi þó að það sé soldið kalt úti , en ég held að það sé við frostmark á næturnar, en stór eldur reddar því og ný dúnúlpa á morgnanna.
Og viti menn við erum búnir að mastera listina að kveikja eld án þess að nota bensín, og það er erfiðara enn að seigja það.

Við erum farnir að ná að lifa fyrir 2 og hálfa evru á mann á dag og það er nokkuð vel sloppið held ég. Bernd er búin að fullkomna listina að nýta næringuna og helst í fullkomnu jafnvægi með að borða bara það sem hann getur nýtt og þá þarf hann ekki að skíta. hann slær 2 flugur í einu höggi því að tíminn er peningar og hann á fullt af tímapeningum núna... heppinn.
ég var ekki allveg svo heppin og settist í rósarunna eða eitthvað, það var gaman.

Við keiptum ódýrt sinnep um daginn, og bernd setti það á brauðið sitt og fékk svo nefrennsli því að það var svo sterkt, ég ætlaði sko að sýna honum að það væri nú ekki svona sterkt og át 3 matskeiðar af sinnepi, og viti menn ég fékk íllt í magan í svona klukkutíma, og fyrir utan að þetta var sterkasta sinnep í heimi þá er 20 % alkahól í því, sem ég veit ekki allveg afhverju. en það nýtist allaveganna í súpu núna.

Við erum búnir að klifra fullt af probbum og skinnið er eitthvað að minnka, ótrúlega gaman en það er samt smá rigning núna svo að við sitjum inná kaffihúsi og drekkum heitt kakó. það versta við að fara inn og sitja fyrir framan ofn er það að maður vill eiginlega ekkert út aftur

Við fáum svo nokkrar heimsóknir hingað núna, Halldóra ætlar örugglega að kíkja frá París og vinur bernds kemur 3 nóv og svo kemur frændi 10.

Löggan hérna sannaði svo ágæti sitt því að við vorum ný búnir að hjálpa 2 klifrurum sem lentu í því að það var brotist inn í bílinn þeirra hliðiná einhverju klifursvæði svo að hurðin var biluð, og við lánuðum þeim einhver verkfæri, eftir svona korter kom löggan upp úr þurru og keirði um bílastæðið rólega og stoppað akkurat fyrir framan okkur þar sem við vorum að borða og horfði á okkur eins og glæpamenn, opnaði gluggann og sagði frekjulega á frönsku " ÞAÐ ER BANNAÐ AÐ HAFA RUSL UNDIR BÍLNUM" ... vá takk fyrir að vera gagnslaus.

5 comments:

Ice said...

Lýst mér vel á að þið séuð að klifra á fullu. Freistandi að beila a skóla og vera aðeins að klifra. En það má bíða aðeins.Enn, njótið ferðarinnar !

Hjalti og Bernd said...

KÍkiru ekki bara út um jólin eitthvað gamli, það er mannbætandi

Stína said...

Hvar ætlið þið að vera um jólin? Chorro?

Ice said...

Væri mjög gaman að kíkja út um jólin, en vegna kreppu og að ég nenni ekki að vinna með skólanum. Þá stunda ég bara ísklifrið og kreisti steinana niðrí klifurhúsi um jólin. Ég verð bara fylgjast spenntur með bloggunum og lifa mig inní þetta!

Magdalena Ficek said...

HI BERND
www.spojrzwsiebie.blogspot.com