Við erum komnir aftur til þýskalands eftir að hafa verið í tékklandi í sirka viku, vorum eitthvað að skoða, gistum út í skógi og grilluðum þýskar pylsur og senf.
svo erum við líka búnir að mastera slackline, þótt að slingurinn sé alltof teygjanlegur og ég hafi fengið ágætis slammara þá gengur þetta ágætlega.
það var svona það helsta, en það er mjög flott klifurbúð í prag þar sem við keiptum slackline-ið. Og það er trúlega eina ástæðan fyrir að fara í prag.
við erum alltaf að leita að einhverju nýju að gera á meðan við hvílum klifrið.
Ég er tildæmis búin að kenna bernd mannganginn í tafli en það tók nokkra daga og mikla þolinmæði, hehe. við erum að spá í að renna til suðurþýskalands á eftir eða um helgina, og prófa bílinn betur en hann er búin að standa sig vel enda hetjubíll.
við ætlum að fara til læknis í næstu viku til að láta kíkja aðeins á okkur en kallinn sem skrifaði eina klifurmeiðslabók sem er til niðrí í klifurhúsi býr í næsta bæ við okkur held ég.
það væri trúlega gott að nokkur sígaunatár í krukku. ég hef heirt að það virki.
Thursday, October 16, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
jó,
svo veit ég að þetta þrælvirkar á mín sinafestingameiðsli:
http://onlineclimbingcoach.blogspot.com/search/label/Injuries
semsagt hvíla alveg í 2 vikur (ekki hvíla alveg of lengi) og byrja þá mjög rólega að setja smá þunga á puttann, þvernudda hann og gera allt til að auka blóðflæði inn á svæðið. Hönd í hálftíma í köldu vatni tvisvar á dag er alveg málið.
bestu til útlanda
hæbb , já ég var einmeitt búin að vera að lesa þessa síðu. hún virðist vera góð fyrir að mér verður eiginlega bara kalt þegar ég er með höndina í köldu vatni !
Post a Comment