Thursday, October 9, 2008

Learn The Hard Way !

Jæja þá er þetta aðeins búið að breytast í bili, Bernd er að rifja upp gömul fótboltameiðsli í hnénu og ég var að fá meiddi í puttan, svo að við þurfum að hlíla klifrið smá. en við látum það ekki stoppa okkur í gleðinni og erum sáttir við að vera ekki á íslandi sem er að sökkva.

Við vorum búnir að fá okkur bíl og síðust 2 dagar erum við búnir að vera út í bílskúr að pimpa bílinn, við erum búinir að gera svefnpláss og allskonar fíneri .
Renndum í gær til prag og ætlum að vera hér í nokkra daga, ég komst svo að því að ég væri í tékklandi en ekki slóvakíu en það er annað mál... geðveikt veður og við erum búnir að vera berir að ofan í 20 - 30 stiga hita, væri klárlega ekkert gaman að klifra í svona veðri...snökt, djók.

við vorum kanski að spá í að fara svo eitthvert norður og heimsækja fólk í nokkrar vikur og fara síðan aftur suður í Font og hitta á frænda þar í nóvember. við ætlum samt ekki að detta úr formi við þetta og erum að missa okkur í æfingum og kalla hvorn annan feitan til stuðnings.

1 comment:

Ice said...

Snillingar, gæti ekki hljómað betur, skoða heiminn og klifra. Vonandi verða meiðslin ekki að hefta mikið!
Skemmtið ykkur!

kv.Ási