Það er búið að vera fullt að gera þessa dagana og við erum búnir að klifra á fullt af svæðum hérna.
ég er samt ekkert byrjaður að rata hérna vegna þess að það er allt eins, alltaf tré og það eru svona reglur um að öll húsin verði að lýta eins út.
Bernd fór til skósmiðs sem endursólar klifurskó fyrir einhvern 1500 kall, þegar við komum þaðan út þá spurði ég bernd hvaða gúmmí hann væri með og bernd sagði að hann væri hættur með 5.10 vegna þess að það væri ekki nógu gott og notaði Lasportavia gúmmí í staðinn. þá fékk bernd skammarræðu.
fórum líka í ótrúlega flotta klifurbúð sem var með fullt af prana og allskonar fíneríi, Dai Kyomata hafði verið þar einhverjum klukkutíma á undan okkur.
við vorum að leita að búlder tópó en búðarkallinn sagði að það væri ekki til vegna þess að svo mikið af steinunum væru á einkaeign. Hann sjálfur búlderaði bara og sagði okkur frá stóru búldersvæði sem að við eigum eftir að kíkja á.
Sunday, September 28, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Hvað þýðir eiginlega búlder??
Búlder er Smúldher... það er klifur á grjóthnullungum sem snýst um BÚMBstyrk í stutta stund og er algjörlega málið, betur þekkt sem grjótglíma á íslensku...
http://klifurhusid.is/?subj=kynning
Post a Comment