Sunday, September 21, 2008

og á sjöunda degi var hvíldardagur...

það var létt rigning í dag sem er best þegar maður er búin að plana hvíldardag því þá gleimir maður honum ekki, þótt að það séu samt fullt af svæðum sem er hægt að klifra á í rigningu vegna þess hvað það er mikið úberhang. Fórum í morgunmatarboð til systur bernds kl 11 og það var allveg til kl 6, svo að ég náði að borða geðveikt mikið fara svo inn og leggja mig og koma aftur og fá mér eftirrétt... fullkominn hvíldardagur held ég.
við nelgdum niður bíl á ebay áðan það er WV T3 Transporter árgerð 92, við ætlum að fara að skoða hann og prófa á næsta hvíldardegi en hann er í berlín, sem að mér skilst að sé 9 dagleiðir í burtu á dádýri.
vorum að búa til síðu undir myndir og hún mun vera á myspace.com/klifur og ég set link neðst.
við erum búnir að taka nokkrar myndir en það koma fleirri...

Ætlum að fara á svæði á morgun sem heitir Kleinziegelfeldertal,diebesloch. ég býð ís á hann sem að getur borið þetta fram í fyrsu tilraun, það er víst mjög gott

1 comment:

Unknown said...

/klænsígelfeldetal, díbeslokh/ ?