Saturday, September 20, 2008

Nýr dagur = Nýr sector

já þetta er gott. það er þannig hérna að við förum alltaf í morgunmat kl 8 á hótel bernd, sem er mjóg gott því að þá náum við að nýta daginn allveg. fórum á svæði í morgun sem á að vera fullt af klassíkum leiðum, þetta er 40 metra hátt klifur og leiðin sem átti að vera allveg svakalega góð var frekar leiðinleg og trúlega mesta línudrag í heimi. Eftir hádegis mat fórum við að kíkja í leiðarvísin eftir leiðum og bernd fann leið sem heitir "í minningu Jimi Hendrix" við urðum að finna hana og þegar við komum þangað í snarbrattri híð kom í ljós lítill dalur sem var bara klettar í hálfhring.
Leiðin sem við vorum að leita af var vonum framar ótrúlega flott, þetta var stiðsta leiðin á svæðinu bara einhverjir 5-6 metrar og fullt af krimper og bara búlder ótrúleg skemmtileg og ég náði að klára hana eftir margar tilraunir og bernd datt einu sinnu í henni út af pumpi þótt að hann hafi klárað allar hreifingar með afbrigðum léttar en ég.. við höfðum bera ekki meiri tíma því að við þurftum að vera mættir á hótel kolb klukkan 6.... svo mundi ég eftir því að ég gleimdi að seigja frá því að í gær á strumpasvæðinu þá var leið sem heitir býflugnabú og í endanum á hemmi er risa grip sem er með býflugnabúi í , ég hélt að bernd væri bara að grínast þegar að hann var að seigja mér það þegar ég var að fara að klifra en þegar ég kom upp horfði inn í juggarann þá sá ég fleiri geitunga en ég hef nokkurn timann séð á ævinni, bernd sagði að þeir væru óheppnir sem væru tæpir þarna og gripu í juggarann... haha .. það væri trúlega slæmt, en allaveganna þá er hvíldardagur á morgun og við ætlum að fara á skellinöðrunni hans bernd um allt franken og skoða fullt af klifri. það verður stuð og ég held að við munum samt taka með klifurskó því að bernd var að tala um eitthvað búlder.......

No comments: