Friday, September 19, 2008

Já þetta er búið að vera geiðveikt hérna í gær vöknuðum við fyrir kl. 8 og það var sól og ekki ský á himni, við átum og fórum að klifra, svæðið sem við fórum á var mjög gott og við náðum fullt af klifri fyrir hádeigi svona aðeins til að hita okkur upp, fórum svo í hádegis mat í bænum hliðiná og þvínæst á klikkað svæði sem var
bara 10 metra hátt og með 45 gráðu halla... ótrúlega flottar leiðir og fullt af puttaholum, það getur verið mjög erfitt að onsight-a leiðir þarna því að það er svo mikið af holum og ef það er ekki kalk á þeim þá þarf maður að prófa allar og það er frekar mjólkursýrandi. Í dag fórum við svo á svæði sem heitir strumpasvæðið og er með flottum leiðum, bernd gekk vel að rugla leiðum svo að hann hann endaði öskrandi einhverstaðar því að hann hélt að leiðin væri miklu léttari en hún var, en við erum hetjur svo að þetta gekk nú allt vel... það er líka búlder þarna sem við ætlum að kíkja á bráðum.
maður finnur bara hvað maður er að komast í form og er alltaf að klifra betur og betur... það er svo mikið af svæðum hérna sem við eru búinir að ákveða að fara að klifra á bráðlega að við gætum ábyggilega verið bara hérna í 9 mánuði.
við tókum svoldið af myndum og erum að reyna að koma þeim inn en ég held að við búum bara til myndasíðu og setjum inn link á hana og svo setjum við líka eitthvað inná 8a.nu en ég er að vera búin að sannfæra bernd um að búa til aðgang...
og já svo ætlar vinkona hans bernd frá Austurríki að kíkja í heimsókn því henni langar að klifra í hér í franken í nokkra daga og svo fáum við að fara til hennar og gista þar og klifra í ölpunum einhverstaðar, það verður sweet...blablabla...

1 comment:

Unknown said...

Hallú hallú!! Gaman að þú skemmtir þér vel brósi. Krummi var einhvað að banka á hurðina hjá þér og var svektur þegar engin svaraði.
Caio caio